Enka Tónlist
Enka er vinsæl japönsk tónlistarstefna og líkist helst hefðbundnum japönskum tónlistarstíl. Nútíma enka er hinsvegar svipuð nýlegri tónlist sem japanir þekkja í dag.Nútíma enka kom á sjónarsviðið í kringum 1969 og manneskjan sem gerði það frægt var hún Fuji Keiko.
Fuji Keiko Fuji keiko var virkilega fræg Enka söngkona í japan á sjöunda áratugnum. Hún er eiginkona Utada Teruzane og svo er hún móðir hennar Utada Hikaru. Skírnarnafn hennar var Abe Junko. Utada fjölskyldan var öll í tónlist og var Keiko aðalsöngvari í þessu fjölskyldu verkefni Fuji Keiko fæddist árið 1951, þann 5 júlí í Iwate ogt ólst svo upp í Hokkaido. Faðir hennar hét Abe Souji og hann var roukyoku söngvari á meðan mamma hennar spilaði á shamisen og var það hennar atvinna. Keiko ólst upp mikið ein þar sem foreldrar hennar voru bæði í tónlist og voru oftar en ekki að túra um Hokkaido og Tohoku. Einu sinni þegar faðir hennar varð mjög veikur fyrir tónleika á Hokkaido, Fuji ákvað að fylla í skarðið fyrir föður sinn. Á tónleikunum gerðist mikilvægur hlutur fyrir Fuji og feril hennar, vel þekktur rithöfundur heyrði hana syngja og stakk upp á því við hana eftir tónleikana að hún skyldi flytja til tókíó og verða sönkona þar.Árið 1969 í september söng lagið Shinjuku no onna sem varð virkilega vinsælt Næstu lög hennar sem hún gaf út urðu líka gríðarlega vinsæl en það voru þau Onna no blues og Keiko no yume wa yoru Hiraku og hjálpuðu þau henna upp frægðarstigann Þessi lög fóru á listan hjá Oricon og sátu þar í fyrsta og öðru sæti í 40 vikur sem er það mesta í tónlistarsögu Japans Eftir 10 ár í tónlistarbransanum ákvað Fuji að hætta og flytja til Bandaríkjanna eða nánar tiltekið til New york. Þar kynntist hún Utada Tezurane en þau urðu fljótt gift og árið 1983 fæddi hun þeirra einkabarn Utada hikaru. Þrátt fyrir að þau hjónin hafi skilið á einhverjum tímapunkti þá giftu þau sig aftur árið 2005
Alþjóðlegt enka Enka hefur haft mjög mikil áhrif á tónlist í Taiwan sem var einu sinni hluti af japan. Sarabjit Singh Chadha var fyrsti enkasöngvarinn sem var ekki japanskur. Það er ekki bara pólutík sem hjálpar að sameina lönd heldur líka tónlist eða svo segir Sarabjit Singh Chadha. Chadha er virkilega frægur í Japan og þekkja flestir nafn hans þar. Þó að Chadha sé viðskiptamaður í Delhi og er bara þekktur fyrir það þar, þá er hann vinsæll Enkasöngvari í Japan Hann byrjaði að syngja enka tónlist á sjöunda áratugnum og var þá einungis nemi í japan en þurfti að hætta vegna lanvistarleyfið hafði runnið út og í 30 þá söng hann alls ekki neitt. En í endurkomu hans árið 2008 fékk hann góðar mótökur frá Japan í sambandi við tónlist sína